"Þegar ég giftist Óttari giftist ég í raun Megasi í leiðinni," sagði söngkonan Jóhanna V. Þórhallsdóttir í nýjum þætti Sirrýjar, Líf & list, sem frumsýndur var í gærkvöld og endursýndur í kvöld klukkan 21.30. Hún vísaði í það hversu stórt hlutverk tónlist Megasar hefru leikið í daglegu lífsins Óttars Guðmundssonar geðlæknis og eiginmanns Jóhönnu, en hann var að senda frá sér merkilega bók um Megas frænda sinn. Þar er á ferðinni viðamikið rit, "Esenis Tesaenis (Viðriðni veit ég mig vera) Megas og dauðasyndirnar.
Óttar ræddi um dauðasynidirnar og Megas í viðtalinu sem fram fór í bókaversluninni Iðu í Lækjargötu sem verður einn helsti upptökustaður þáttarins fram á sumar, en þættirnir eru að öðru leyti teknir upp vítt og breitt um bæinn. Óttar segir alla hafa skoðun á Megasi og eigi sína mynd af honum. Og það er ekkert endilega sama myndin og dregin er upp af listamanninum í bókinni.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni inni á hringbraut.is.