Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, vill fá heimild til að geta tekið mannvirki, lönd og framkvæmdir eignanámi ef aðstæður kalla á. Það verði gert í friðlýsingarskyni. Þetta kemur fram í frétt hjá forsætisráðuneytinu. Lesa má frumvarp til lagabreytinga um málið hér.
Ef lagabreytingar Sigmundar Davíðs verða samþykktar fær hann og þeir forsætisráðherrar sem á eftir koma vald til að láta Minjastofnun sem var flutt úr mennta- og menningarmálaráðuneytinu inn í forsætisráðuneytið eftir að Sigmundur varð forsætisráðherra, „útbúa tillögu um að tiltekin byggð, sem að mati ráðherra hefur varðveislugildi á landsvísu, verði gerð að verndarsvæði í byggð.“ Hefði Sigmundur þá einn það vald að samþykkja tillöguna.
Borgarráð Reykjavíkur hefur í umsögn um lagafrumvarpið varað við því að breytingunni fylgi „ótakmarkað ráðherraræði“. Í brýnu hefur slegið milli Reykjavíkurborgar og forsætisráðherra vegna skipulagsmála í borginni.
Í umræðum á Alþingi í gær lýsti Sigmundur Davíð áhuga á að húseignir Landspítalans við Hringbraut kynni að vera rétt að selja síðar aðilum í ferðaþjónustu til að koma upp hótelum á svæðinu.