Getur krafið ráðherra um frekari gögn

Mjög er nú horft til þess hvort forsætisráðherra kalli eftir frekari gögnum um hagsmunatengsl menntamálaráðherra við Orku Energy í ljósi þess hvað mörgum spurningum er ósvarað um samskipti ráðherrans við fyrirtækið, þar á meðal hvort hann hafi hyglað því á kostnað annarra fyrirtækja í opinberri heimsókn til Kína.


Í siðareglum Stjórnarráðsins er skýrt kveðið á um þennan möguleika, en þar segir: "Ráðherra upplýsir um fjárhagsleg hagsmunatengsl eða önnur slík tengsl sem valdið geta hagsmunaárekstum. Eyðublað á vegum skrifstofu Alþingis þjónar þessu hlutverki, sbr. reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingis­manna og trúnaðarstörfum utan þings. Hafi ráðherra ekki fyllt það út sem þing­maður skal hann gera það þegar í kjölfar embættistöku. Forsætisráðherra getur í samráði við ríkisstjórn ákveðið að kalla með skipulögðum hætti eftir frekari upplýs­ingum um hagsmunatengsl ráðherra sem birtar yrðu almenningi."


Það er síðasta setningin í þessu ákvæði sem nú er horft til, en sem fyrr segir er mörgum spurningum ósvarað í máli Illuga Gunnarssonar og Orku Energy og ekki aðeins sem varða Kínaferðina sem áður var nefnd heldur og um fjárhagstengsl ráðherra og fyrirtækisins og hvað hann hefur fengið í þoknun frá því fyrr og síðar, hvernig þeim greiðslum var háttað og hvar skil á þeim hafa verið gerð.


Jón Þór Ólafsson Pírati sagði á þingfundi í gær að allt snerist þetta um að misbeita ekki valdi sínu í þágu sérhagsmuna. Hann taldi athugandi að taka upp viðurlög gegn brotum gegn hagsmunaskráningu þingmanna og ráðherra. Af sam tilefni sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins að heppilegt væri að þingið uppfærði hagsmunaskráningu þingmanna og ráðherra tvisvar á ári, en það er nún aðeins gert einu sinni á kjörtímabili.