Hinn skarpi og á stundum orðhvati þjóðmálarýnir, Jónas Kristjánsson á erfitt með að skilja af hverju Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra getur ekki svarað einföldustu spurningum.
Tilefni skrifa hans á jonas.is er svar ráðherra við einfaldri fyrirspurn formanns Vinstri grænna á Alþingi í gær: \"Katrín Jakobsdóttir spurði Sigmund Davíð á þingi í gær, hvort framsókn stæði heilshugar að söluáformum fjárlagafrumvarpsins á Landsbankanum,\" skrifar ritstjórinn gamli og bætir við: \"Hann svaraði með því að segja sig andvígan byggingu höfuðstöðva bankans á Hörpureit.\"
Og Jónas heldur áfram: \"Katrín spurði forsætis líka, hvort fyrirhuguð sala á Landsbankanum væri að frumkvæði framsóknar og hvernig þetta félli að samþykktum flokksins um að bankinn skuli vera í ríkiseigu. Hann svaraði, að bankann sinnti ekki alltaf hlutverki sínu eins og ráðherrann vildi.\"
Niðurstaða pennans er þessi: \"Sigmundur getur ekki svarað einföldum og afar skýrum spurningum og fer jafnhraðan að tala um annað. Dæmigerð veruleikafirring hans.\"