Nýtt malaríulyf er á leiðinni á markað sem talið er að geti bjargað meira 600 þúsund mannslífum á hverju ári. Lyfið er framleitt án hagnaðarvonar og er búist við að skipti sköpum í baráttunni við þennan vágest sem malarían er.
Læknirinn og borgarstjórinn dagur B. Eggertsson minnir á það á fésbókarsíðu sinni í dag að með þessu leyfi sé gamalt baráttumál flokkssystur hans Gro Harlem Brundtland að verða að veruleika, en þessi fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og framkvæmdastjóri WHO, heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna barðist af miklu kappi við lyfjarisana í heiminum sem höfðu lengi vel misjafnlega mikinn áhuga á að þróa og búa til lyf gegn malaríu sem eðli málsins samkvæmt getur ekki verið selt í hagnaðarskyni í fátækustu löndum heimsins.
Góðgerðasjóður Íslandsvinanna Bills og Melindu Gates hefur lagt til mikla fjármuni í þróun þessa lyfs sem brát fer í dreifingu og er talið marka tímamót í baráttunni gegn sjúkdómnum sem breiðist út með biti moskító-flugunnar eins og kunnugt er.
Talið er að 200 milljónir manna þjáist nú um stundir af malaríu.