Gætum skipt við erlend tryggingafélög

Sú spurning þýtur nú um netheima sem eldur í sinu hvort landsmenn eigi þess kost að kaupa skyldutryggingar af erlendum tryggingafélögum. Ekki síst hefur sú frétt Hringbrautar vakið mikla athygli að danskt félag ákvað að lækka iðgjöld til kúnna sinna um 8% og gefa auk þess drjúgan hlut til góðra mála í ljósi góðrar afkomu. Hér hafa tilfærslur íslenskra tryggingafélaga vegna breytinga á formi um bótasjóði leitt til þess að á sama tíma og tryggingafélög greiða gríðararð til hluthafa hækka um þau iðgjöld  og hefur vakið hneykslun og reiði.

Spyr.is hefur fengið svar við fyrirspurn frá lesanda þar sem spurt var hvort Íslendingar geti keypt tryggingar af erlendum félögum. Í svari Allianz frá Eyjólfi Lárussyni framkvæmdastjóra kemur fram að erlend tryggingafélög geti sótt um starfsleyfi til að selja skaðatryggingar hér á landi. Lyfið væri þá sótt til FME. Hins vegar fylgi því mikið umfang. Miðað við smæð íslenska markaðarins og þá staðreynd að hér séu fyrir stór félög haldi erlendir aðilar að sér höndum.

\"Það sem gerir þetta flóknara en ella varðandi skaðatryggingar er hversu mikið umfang er í kringum þessa starfsemi, tjónaskoðunarmenn, tjónamatsmenn, bifreiðaverkstæði, iðnaðarmenn og svo framvegis.  Það hefur gert það að verkum að fyrir svo lítinn markað sem Ísland er, í samanburði við hina erlendu markaði, og þá staðreynd að hér eru fjögur tryggingafélög sem nú þegar bjóða alla þá tryggingaþjónustu sem þarf í skaðatryggingum, þá hafa erlendu félögin haldið að sér höndum varðandi þetta,\" segir Eyjólfur framkvæmdastjóri Allianz í svari við fyrirspurn frá spyr.is.