Getum fordæmt búrkur, ekki bannað

\"Fyrr eða síðar kemur að takmörkunum á fjölmenningu í samræmi við regluna: Í Róm sem Rómverjar,\" skrifar sá æfði fjölmiðlamaður sem Jónas Kristjánsson, en hann fjallar um þanþol fjölmenningarsamfélagsins á vefsvæði sínu, jonas.is í dag.

\"Við munum ekki hagræða meginstraumi hegðunar okkar til að þóknast sérhagsmunum,\" skrifar hann og bætir við: \"Við munum ekki hagræða skólatímum, prófum og leikfimi eftir bænastundum eða föstum múslima. Við munum ekki heldur taka upp halal eða kosher matreiðslu í mötuneytum.\"

Aftur á móti segir Jónas að landsmenn geti samþykkt illa hirt skegg og slæður, því þau atriði breyti ekki okkar hegðun: \"Við getum fordæmt búrkur af kvenfrelsisástæðum, en varla bannað þær. Hvar sem ég fer um heiminn, virði ég siði og reglur fólksins,\" skrifar Jónas og kveðst ætlast til þess að aðrir virði hér siði og reglur okkar.