Getum ekkert fullyrt um öryggi sjúkra

"Við vonum auðvitað að lífi sjúklinga sé ekki stefnt í hættu nú um stundir en við getum samt ekkert fullyrt í þá veru," sagði Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans í samtali við Pál Magnússon á Þjóðbraut í gærkvöld.


Páll er gestur nafna síns af augljósri ástæðu; sjötta heilbrigðisstéttin er komin í verkfall á Landspítalanum á sex mánuðum, en þar riðu læknar á vaðið og á eftir hafa komið lífeindafræðingar, geislafræðingar, náttúrfræðingar, lkjósmæður og nú síðast hjúkrunarfræðingar en allir síðastnefndu hóparnir standa í verkfallsaðgerðum sem í tilviki félagsmanna innan Bandalags háskólamanna hafa staðið yfir í nærfellt tvo mánuði.


Spítalinn er sem lamaður fyrir vikið, þjónustan svo skert að Landlæknir segir að grípa verði inn í deiluna strax ef ekki eigi illa að fara. Og forstjóri spítalans hefur auðvitað líka sínar áhyggjur eins og vel kom fram í þætti Páls Magnússonar í gærkvöld: "Staðan er einfaldlega þessi; við getum ekki útlokað að sjúklingar lendi í lífshættu í ljósi aðstæðna sem nú eru uppi."


Hægt er að skoða þáttinn í heild sinni á hringbraut.is og klippur úr honum hér á forsíðu vefjarins.