Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að ein góð röksemd fyrir fyrirhugaðri sölu á 30% af eignarhluta ríkisins í Landsbankanum sé að starfsemi bankans gangi nú vel. „Í hvaða veröld býr fólk?“ spurði Bjarni þegar hann svaraði óundirbúinni fyrirspurn frá Helga H. Hjörvar, þingmanni Samfylkingar. Bjarni sagði hægt að fá gott verð fyrir eignarhlutinn í ljósi hagnaðar bankans. Hitt kæmi ekki á óvart að Samfylkingin talaði fyrir ríkisumsvifum, það væri líka í anda Samfylkingar að skipta reglulega um stefnu, því áður hefði sami flokkur staðið fyrir hugmyndum um sölu og hafi þá gert ráð fyrir tekjum af sölu. Ein helstu rökin fyrir sölunni séu að þar með losni fé til að greiða upp skuldir og lækka vaxtakostnað ríkisins af skuldum.
Helgi Hjörvar taldi tímasetningu sölunnar afleita. Skattborgarar myndu hagnast meira á því að eiga bankann áfram en með sölu. Of stutt væri frá hruni til að ríkinu væri óhætt að draga sig út úr eignaumhverfi eftir misheppnða einkavæðingu ríkisbankanna fyrir hrun. Engar aðstæður væru til að selja nú. Ekki væri tryggt að fámennar klíkur gætu ekki sölsað sig undir viðskiptabanka, salan sé ótímabær, þjónustugjöld bankans of há og vaxtamunur óeðlilegur.
Bjarni sagðist sjá fyrir sér að ríkið yrði aðaleigandi Landsbankans um langa framtíð. Mikill ávinningur gæti þó falist í að minnka eignarhlut ríkisins. Við gætum bæði átt kökuna og selt hana, eins og fjármálaráðherra orðaði það.