Getum afsalað okkur arfi

Fram kom í fyrsta þætti Sjónarhorns á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld að fólk geturn afsalað sér getur afsalað sér arfi ef þess er óskað, en til þess eru nokkrar leiðir.  Ein leiðin er að afsala sér og niðjum sínum arfi. Önnur er að afsala sér arfinum en ekki niðjum sínum, en þá geta meðal annars börn hins látna notið arfsins. Þriðja leiðin er afselja arfinn til óskylds aðila en þá er arfurinn álitinn sem óskattskyld gjöf, að því er fram kom í máli Höllu Bjargar Evans lögmanns og skattasérfræðings KPMG í þættinum. 


 Halla Björg segir einstaklinga geta stjórnað arfi sínum töluvert.  Arfi getur verið ráðstafað til ættingja, vina eða til samstaka. Ef einstaklingur á maka eða börn getur hann valið hvert 1/3 af arfi hans fer, en 2/3 fer ávallt til maka eða barna.


Þáttinn, sem er í umsjá Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur formanns FKA, má nálgast á hringbraut.is í heild sinni eða að hluta í klippum á forsíðu.