Geti hvorki borgað rafmagn né vatn

Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Kvennaskólans og formaður Skólameistarafélagsins, segir að svo illa sé komið fyrir mörgum framhaldsskólum að þeir eigi hvorki fyrir rafmagni né vatni.

Þetta kemur fram í Umræðunni á Hringbraut í kvöld.

Hjalti Jón er mjög ósáttur við hvernig komið er og vandar hvorki menntamálaráðherra né fjárlaganefnd kveðjurnar.

Hann segir ástandið aldrei verra en nú og ráðnueytið styjðist við kolrangar forsendur með þeim afleiðiðingum að nánast ógerningur er að reka skólana svo vel sé og við þeirra hæfi.

Viðtalið við Hjalta Jón hefst klukkan 21:00 í kvöld.