Geta ekki sparað nóg með fyrstu fasteign

BSRS segir að með Fyrstu fasteign frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var nýlega kynnt sé verið að beina stuðningi til tekjuhærri hópa. Með því sé stuðningnum beint frá þeim tekjulægri til þeirra tekjuhærri.  Þetta kemur fram í umsögn BSRB um frumvarpið.

BSRB mótmælir þessari þróun harðlega. Í umsögninni segir m.a.: „Það úrræði sem stjórnvöld ætla að bjóða upp á byggir á því að skattfrjáls sparnaður einstaklingana sé nýttur til að eignast fasteign. Í umsögn BSRB um frumvarpið er bent á að stjórnvöld hafi á undanförnum árum dregið verulega úr stuðningi við fasteignaeigendur. Sá stuðningur hafi verið á formi vaxtabóta sem hafi árið 2011 verið tæplega 19 milljarðar króna en hafi verið áætlaður um 6,2 milljarðar króna á fjárlögum vegna ársins 2016. Vaxtabætur hafi því verið lækkaðar um 70 prósent á síðustu fimm árum“.

Í umsögninni segir að bráðavandinn á fasteignamarkaði sé ekki leystur með þessu. Bent er á að þær fjárhæðir sem einstaklingar eða sambúðaraðilar geti safnað með úrræðinu séu of lágar til að geta staðið undir 20 prósent af útborgun af íbúð miðað við núverandi fasteignaverð. Því síður muni þær standa undir útborgun eftir fimm ár í ljósi þess hver þróunin hafi verið á fasteignaverði og hvernig líklegt sé að það þróist.