Gestir gleymdu ótrúlegustu hlutum í vestmannaeyjum - sjáðu allt sem varð eftir – tæplega 100 hlutir

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur  á Facebook-síðu sinni birt myndir af hátt í 100 óskilamunum sem urðu eftir á eyjunni við lok þjóðhátíðar, sem fram fór sem endranær um nýliðna verslunarmannahelgi.

Mestmegnis er um bakpoka, yfirhafnir, peysur og höfuðföt að ræða. Þá gætu einhverjir gestir hafa farið berfættir heim, þar sem nokkur skópör urðu eftir.

\"\"

\"\"

Hattur með skrautfjöður á meðal óskilamuna

Einhverjir urðu fyrir því óláni að tapa símum sínum, lyklum, töskum og úrum, auk þess sem gleraugu töpuðust, þar á meðal Rayban sólgleraugu.

\"\"

Alla óskilamunina má sjá hér: