Rithöfundurinn Gerður Kristný og leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir verða gestir Karls Ágústs Úlfssonar í spjallþættinum Helginni í kvöld klukkan 20.00 og ræða það sem hæst hefur borið í vikunni sem að hálfu leyti heyrir til vetrar og hálfu til sumars, enda þótt veðrið bendi eindregið til þess að farið sé að hausta.
Af nógu er að taka í umræðunni enda skelfur sjálft samfélagið og logar í illdeilum á vinnumarkaði. Þeir sem eru ekki nú þegar komnir í verkfall virðast flestir hverjir stefna þangað.
Þættir Karls Ágústs njóta ekki einasta vinsælda sakir góðra gesta heldur kann þáttastjórnandinn að koma fyrir sig orði þegar hann gerir upp vikuna í kunnum inngangsorðum sínum sem enginn, sem ann íslenskri kaldhænði, getur látið framhjá sér fara.
Klippur úr þáttum má má horfa á hér: