Gerður í Blush rifjar upp kæruna: „Þau fóru bara í eitthvert niðurrif“

Kynlífshjálpartækjasalinn Gerður Huld Arinbjarnardóttir, best þekkt sem Gerður í Blush, rifjaði upp heldur óskemmtilega lífsreynslu í Síðdegisþættinum á K100. Sagði hún að það hefði átt að kæra sig fyrir innflutning á ólöglegum vopnum.

„„Ég hef einu sinni lent í því að það átti að kæra mig fyrir innflutning á ólöglegum vopnum og það var ágætis lífsreynsla,“ sagði Gerður.

„Hann tilkynnir mér það að það ætti að kæra mig fyrir innflutning á ólöglegum vopnum af því ég var að flytja inn svona loðin rauð handjárn fyrir Blush. En svo fór það ekkert lengra.“

Gerður fékk aldrei handjárnin.

„Þau fóru bara í eitthvert niðurrif eða ég veit ekki hvað var gert við þau. Það er öryggisvinkill á þessu og þetta er loðið, rautt. Fyrir utan það þá er þetta úr áli svo það er mjög auðvelt að beygja þetta. Það var líka pínu hlegið að þessu, að lögreglan og tollstjóri hafi gefið sér tíma í að senda inn þessa kæru sko.“