Ragnheiði Elínu Árnadóttur, ferðamálaráðherra finnst það skjóta nokkuð skökku við að ráðherra síðustu ríkisstjórnar gagnrýni hana fyrir að ráða stjórnenda ríkisstofnunar án auglýsingar því sama hafi verið gert á síðasta kjörtímabili.
Þetta kom fram í samræðum Ragnheiðar Elínar og Katrínar Júlíusdóttur, varaformanns Samfylkingarinnar og fyrrverandi ferðamálaráðherra á Alþingi í gær þar sem sú síðarnefnda gagnrýndi nýtt ríkisbákn ferðaþjónustunnar harðlega og taldi að vart gæti það farið ver af stað en með ráðningu manns án auglýsingar sem fengi tvær milljónir króna í mánaðarlaun.
Þessi nýjasti ríkisforstjóri er ráðinn til sex mánaða þótt verkefnið sé til fimm ára. Sagði Ragnheiður Elín að ráðninguna megi skoða í ljósi þess einbeitta vilja ráðuneytisins að láta þetta verkefni komast af stað, en sá vilji hefði ekki síður verið til staðar hjá Samtökum ferðaþjónustu, sem sé samstarfsaðili þeirra í málinu.
Hún sagði að við ráðninguna hafi verið horft til fordæma frá síðasta kjörtímabili, t.d. þegar forstöðumaður Inspired by Iceland herferðarinnar hafi verið ráðinn tímabundið og svo hafi sá samningur verið framlengdur reglulega.