Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, eða Tolli eins og hann er að jafnaði kallaður, segir að þegar hann komst loksins inn á Reykjalund var hann kominn á það stig að vera sama um allt. Hann hafði þá lent í slysi sem gerði það að verkum að hann þurfti að hætta á sjó eftir áratuga vinnu við sjómennsku. Vegna meiðsla vissi hann að líkamleg vinna var úr sögunni og um það leyti sem hann fór á Reykjalund, var hann bara farinn að gera það sem honum var sagt. Í dag er Tolli rafmagnsverkfræðingur, en hann lauk námi úr háskólanum á Keili og síðar mastersnámi í Danmörku. Allt þetta leiddi af sér í kjölfar þess að á Reykjalundi kviknaði sú hugmynd að prófa að fara í náms- og starfsendurhæfingu hjá Hringsjá.
Saga Tolla er önnur af tveimur árangurssögum sem áhorfendur fá að sjá í þættinum Ég bara spyr sem sýndur verður á Hringbraut kl.21.30 í kvöld. Þátturinn verður endursýndur á morgun og næsta laugardag. Hér má sjá brot úr viðtalinu við Tolla.