Gerðardómur virðist óumflýjanlegur

Allt stefnir í að það komi í hlut gerðardóms að ákveða laun og kjör félagsmanna innan Bandalags háskólamanna eftir að ríkið setti lög á verkfallsaðgerðir þeirra fyrir 10 dögum. Sáttafundir í gærdag báru engan árangur, ólíkt fundi hjúkrunarfræðinga með ríkinu.

Rétt vika er þar til Hæstiréttur mun skipa gerðardóm hafi ekki samist í deilu BHM og ríkisins fyrrir mánaðamótin, en engar líkur virðast vera á því að samningar takist fyrir þann tíma, enda ekkert nýtt sem samninganefnd ríkisins hefur fram að færa að því er Þórunn Seinbjarnardóttir formaður BHM sagði eftir fundinn í gærdag, en til hans var boðað klukkan 09:00 um morguninn.

Þórunn hefur metið það svo að í í þeirra tilviki þurfi \"ómótstæðilegt tilboð\" að koma frá ríkinu svo einhver hreyfing komist á samningaviðræðurnar. Það tilboð sé ekki í farvatninu, svo mikið sé víst.

Það er því þykkt á himni þegar vika er til stefnu.