Gerðardómur skipaður í dag

Þá er komið á daginn að til kasta gerðardóms kemur til að ákvarða launakjör félagsmanna BHM sem hófu verkfall í byrjun apríl og höfðu verið samtals í tvö mánuði í vinnustöðvun áður en ríkisvaldið setti lög á verkfall þeirra fyrr í þessum mánuði.

Það kemur í hlut Hæstaréttar að skipa gerðardóminn í dag, en hann hefur tiltölulega stuttan tíma til stefnu og þarf samkvæmt verkfallslögunum að skila niðurstöðu sinni fyrir 15. ágúst.

Í millitíðinni verður skorið úr máli BHM á hendur ríkinu, en það verður flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur 6. júlí og segir Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM að erindi þess sé mjög skýrt; að hnekkja þeim ólögum sem ríkið setti á stjórnarskrárvarinn rétt fólks til að fara í verkfall.

Í gerðardómi eru þrír einstaklingar og ákveður Hæstiréttur hverjir sitja dóminn og hver stýrir honum.