Gerðardómur gerði betur en ríkið

Ákvörðun gerðardóms á laun­um hjúkr­un­ar­fræðinga fel­ur í sér meiri hækk­un en ríkið hafði boðið þeim, að sögn Ólafs G. Skúla­son­ar, for­manns Fé­lags ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræðinga, sem er við fyrstu sýn nokkuð sátt­ur við hana. Á móti kem­ur að samn­inga­tím­inn sé lang­ur, rúm fjög­ur ár.

Samn­ing­ur­inn gild­ir fram í mars 2019, þrem­ur mánuðum leng­ur en samn­ing­ar á al­menn­um markaði og kveður á um 7,2% hækkun frá 1. mars 2015. Ólafur ræðir úrskurðinn  við mbl.is í dag: \"Við eig­um náttúrlega eft­ir að fara yfir þetta í þaula. Að vísu er samn­ings­tím­inn frek­ar lang­ur en á móti kem­ur að ef al­menni markaður­inn seg­ir upp sín­um samn­ing­um þá get­um við sagt upp okk­ar. Launa­hækk­un­in er hærri en okk­ur hef­ur verið boðið hingað til. Við erum ágæt­lega sátt við það. Við eig­um eft­ir að kíkja bet­ur á þetta en þetta lít­ur ágæt­lega út við fyrstu sýn,“ seg­ir Ólaf­ur.

Full­trú­ar bæði hjúkr­un­ar­fræðinga og BHM munu í kjöl­farið funda hvor í sín­um ranni um ákvörðun gerðardóms sem kynnt var kl. 14:00. Úrsk­urður­inn tel­ur um fimm­tíu blaðsíður og treystu hvorki Ólaf­ur né Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, formaður BHM, sér til þess að kveða upp end­an­leg úr­sk­urð um ákvörðun­ina fyrr en þau hefðu haft tæki­færi til að fara bet­ur yfir hana.