Hæstiréttur hefur gengið frá skipun gerðardóms í kjaradeilu Bandalags háskólamanna og ríkisins og leiðir Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður dóminn. Hann ætlar að kalla deilendur á fund dómsins á morgun.
Ásta Dís Óladóttir, fyrrverandi framvkvæmdastjóri Fríhafnarainnar og Stefán Svavarsson endurskoðandi eiga sæti í dómnum, auk Garðars. Þau hafa hálfan annan næsta mánuð til að komast að niðurstöðu um framtíðarkjör félagsmanna innan BHM, sem lögðu niður vinnu í fyrstu viku apríl í vor og voru í verkfalli samtals í rífa tvo mánuði áður en stjórnvöld settu lög á vinnustöðvun þeirra. Hvorki rak né gekk í samningaviðræðum deilenda allan verkfallstímann og sökuðu BHM-liðar stjórnvöld um sýndarviðræður og skilningsleysi á kröfum félagsmanna sem hefðu dregist verulega aftur úr viðmiðunarstéttum.
Á fyrsta fundi deilenda með gerðardómi á morgun verður farið yfir þær reglur sem fara þarf eftir þegar dómurinn tekur til starfa og er því fyrst og fremst um formlegan upphafsfund að ræða.
Niðurstaða dómsins á að liggja fyrir 15. ágúst.