Gera fyrirvara á grein Skæruliðasveitar: „Það er pínu rokk“

Vefmiðillinn Kjarninn hefur sett fyrirvara á grein sem birt var undir nafni Guðmundar Jónssonar, skipstjóra hjá Samherja, í september í fyrra. Fyrirvarinn er gerður þar sem í ljós kom að greinin var ekki skrifuð af Guðmundi. Í uppljóstrun Kjarnans og Stundarinnar á starfsháttum Samherja kom í ljós að skæruliðadeildin svokallaða, sem samanstendur af Þorbirni Þórðarsyni almannatengli, Örnu Bryndísi Baldvins McClure lögmanni Samherja og Páli Steingrímssyni, skipstjóra, stundaði það að senda fjölmiðlum greinar sem voru merktar öðrum en raunverulegum höfundi.

Í greininni sem send var inn í nafni Guðmundar gagnrýnir hann Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, fyrir að fjalla ekki um vinnubrögð RÚV í Samherjamálinu.

Í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum, sem Samherji neitar að tjá sig um á grundvelli þess að þau kunna að vera stolin, kemur í ljós að Guðmundur skrifaði ekki greinina. Í gær var svo settur fyrirvari á greinina hans:

„Komið hefur í ljós að þessi grein er ekki skrifuð af þeim höfundi sem skrifaður er fyrir henni. Það sést í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum og sýna að raunverulegir höfundar greinarinnar eru Þorbjörn Þórðarson, ráðgjafi Samherja í upplýsingamálum, og Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja. Eftir yfirlegu hefur ritstjórn Kjarnans ákveðið að greinin fái að haldast í birtingu þrátt fyrir að hafa verið send inn undir fölskum forsendum en að gera þurfi lesendum grein fyrir því að hér sé annað á ferðinni en áður var talið. Það er hér með gert með þessari athugasemd."

Fleiri fjölmiðlar hafa birt greinar sem voru skrifaðar af skæruliðasveitinni, hafa til dæmis margar greinar merktar Páli verið birtar á vef Vísis, en aðrir fjölmiðlar en Kjarninn og Stundin hafa ekki aðgang að sömu gögnum.

Snæbjörn Brynjarsson, fyrrverandi varaþingmaður Pírata, deilir fyrirvaranum á Facebook og segir:

„Ég verð að játa að það er pínu rokk í því hjá Kjarnanum að halda greininni inni.“