Geri eigin rannsókn á nútíma þrælahaldi

Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar telur að Íslensks stjórnvöld þurfi að gera sína eigin rannsókn á umfangi nútíma þrælahalds hér á landi. Brynhildur vakti sérstaka athygli á nútímaþrælahaldi á Alþingi fyrr í vikunni undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir

Fleiri fréttir en nokkru sinni fyrr berast okkur um mansal á Íslandi og grun um slíkt. Upp kemst um sum tilvik en nokkuð ljóst er að þetta er staðreynd. Mansal snýst ekki bara um vændi heldur margt annað og skilgreiningin nær utan um fleiri hluti en það. 

Er það nóg?

Brynhildur innti ráðherra eftir því hvað verið sé að gera í þessum málum og hvernig eigi að bregðast við. Hún spurði hvort einhver áætlun sé í gangi til að vinna bug á slíkum glæpum hér á landi. Í viðtali á Hringbraut í kvöld kl.21.30 er rætt við Brynhildi um málefnið en félagsmálaráðherra sagði í svari sínu á Alþingi að „ákveðin aðgerðarátælun“ sé í gangi og aðilar á vinnumarkaði hafi tekið höndum saman. Spurning er þá sú hvort það sé nóg.

Einkunn B

Á þriðjudag kom út skýrsla frá Global Slavery Index sem skoðar þrælahald í heiminum. Þetta er alþjóðlegt sérfræðingatyemi sem gerir kannanir um allan heim og setja saman gagnabanka um þessi mál. Skýrslan er skoðuð kemur í ljós að Ísland fær einkunnina B sem er lægsta einkunn Norðurlandaþjóða og með þeim lægstu í Evrópu. Einkunnin er gefin fyrir frammistöðu stjórnvalda þegar tekið er á slíkum málum. Í skýrslunni kemur einnig fram að Ísland er 49.sæti í heiminum þegar mansal eða nútímaþrælahald er um aðræða. Í skýrslunni er tekið fram að 400 manns séu fórnarlömb nútímaþrælahalds á Íslandi.

Skilgreiningin á við fólk vinnur við aðstæður sem það getur ekki yfirgefið vegna hótana, ofbeldis, harðstjórnar, valdníðslu eða svika.