Dögun, stjórnmálaafl var stofnað 2012 og tengir baráttumál sín verkefnum sem þau segja tengjast fyrst og fremst Hruninu. Grunnurinn að samtökunum var lagður í efnahagshruninu 2008 og eftirmálum þess. Þau kenna sig við “réttlæti, sanngirnir og lýðræði”. Helga Þórðardóttir kennari er formaður Dögunar. Í viðtali á Hringbraut í kvöld segir hún að samtökin, þótt þau hafi ekki verið mikið áberandi undanfarið, enn vinn af einurð og funda reglulega. Dögun hafi til að mynda haldi fundi um ýmislegt, svo sem um stofnun samfélagsbanka sem er eitt af verkefnum samtakanna, segir Helga.
Helga fer yfir markmið og stöðu Dögunar sem er tíundi flokkurinn sem mun að öllum líkindum bjóða fram fyrir kosningarnar í lok október. Helga segir mikinn meðbyr sem Dögun og mikið af fólki sem vilji vera á framboðslistum samtakanna.