Gengisstýring með vaski

Gengi krónunnar er yfirkeyrt og er því langt yfir raunvirði. Raunvirði er það gengi sem tryggir útflytjendum viðunnandi kjör og neytendum lægsta mögulegt verðlag á innfluttum varningi.

Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaupsýslumaður skrifar grein í Morgunblaðið í gær.

Hann segir vexti hér allt of háa. Ole Anton nefnir að verðbólga á Íslandi sé mínus 2,6% og með húsnæðiskostnaði sé verðbólgan hér 1,7% en fæstir reikna þann kostnað inn í verðbólguna.

Þetta kunni að rugla ríkisstjórnina í ríminu. Hún telji að vaskur sé tilvalið tæki til gengisstýringar krónunnar. Þess vegna boði hún tvöföldun vasks á ferðaþjónustuna.

Hvernig á Ísland sem er dýrasta ferðamannland Evrópu að keppa við önnur lönd með 22,5% vask á meðan þau greiða að meðaltali 9,8% vask.

Með framangreindri ákvörðun ríkisstjórnarinnar á vaskur á ferðþjónstuna að fara úr 11% í 22,5%.

Auðvitað er íslenska ferðaþjónustan í samkeppni við mörg erlend fyrirtæki. Hafa ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skoðað vask stöðu í öðrum löndum?

Hér eru nokkrar tölur sem Ole Anton tilgreinir.

Noregur 8%.  Eistland 9%.  Lettland 12%.  Litháen 9%.  Svíþjóð 12%. Finnland 9%. Danmörk 25%. Þýskaland 7%. Holland 6%. Belgía 6%. Spánn 8%. Portúgal 6%.

Hvernig á Ísland sem er nú þegar dýrasta ferðamannaland Evrópu að keppa við önnur lönd með nýjan vask upp á 22,5% meðan þau greiða að meðaltali 9,8% vask?

Grein Ole Anton er á blaðsíðu 34 í blaðinu.

 

rtá