Bryggjan: gengið skaðar rækjuvinnsluna

Í þættinum Bryggjunni i kvöld sjáum við frá heimsókn okkar á norðanverða Vestfirði á dögunum. Fullkomnasta og stærsta rækjuvinnsla landsins, Kampi, er á Ísafirði. Linda Blöndal og Friðþjófur Helgason tökumaður hittu þar Albert Haraldsson, framleiðslustjóra og fleiri. Kampi selur 90 prósent afurðarinnar til Bretlands og í vinnsluna koma reglulega fulltrúar stærstu viðskiptavinanna til að skoða aðstæður, Svo sem frá Tesco og Morrison  - það er mikið aðhald því opinbert gæðaeftirlit innan Bretlands kemur líka í tékkferðir auk innlends eftirlits.

Útgerðarfélagið Birnir á stærsti hluthafinn í Kampa og gerir úr tvö togskip sem veiða m.a. rækju.En afleiðingar gjaldmiðlastöðunnar eru nú þegar farnar að segja til sín en krónan hefur styrkst um 20 á árinu og pundið fallið um 30 prósent. Á fimmtudag bárust þær fréttir að Kampi á Ísafirði hafi sagt upp sjö starfsmönnum fyrirtækisins. Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns. Albert segir við Bæjarins besta að þetta sé óumflýjanlegt þar sem sterkt gengi krónunnar og mikil veiking pundsins hafi valdið miklu tapi. Hér er stutt brot við viðtalið að Albert þar sem hann lýsir rækjukaupum Breta:

 

Hlutverk skipstjórans hefur oft verið sveipað dýrðarljóma. En ábyrgðin er mikil. Sölvi settist niður með Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi skipstjóra, fór í fyrsta túrinn 1959, hann var í brúnni í á fimmta áratug.

Bryggjan er í umsjón Lindu Blöndal, Sölva Tryggvasonar og Friðþjófs Helgasonar og er frumsýndur á mánudagskvöldum kl.21.30.