Fjallað er um einhverja fegurstu gönguleið Íslands í ferðalífsþætti Péturs Steingrímssonar, Víknaslóðir nyrðri á Hringbraut í kvöld klukkan 21:00, en eins og fram hefur komið sýnir sjónvarpsstöðin nú heimilda- og ferðaþætti á fimmtudagskvöldum, allt þar til Þjóðbraut byrjar aftur um miðjan febrúar.
Víknaslóðirnar liggja á milli Seyðisfjarðar í suðri og til Borgarfjarðar eystri í norðri og flétta sig um fjöll og dali, heiðar og víkur þar sem ekki einasta kyrrðin bíður ferðafólks heldur og einstök náttúran með sínum líparíts-litum sem óvíða á landinu verka sterkar á göngumann en einmitt í þessari litríku fjalladýrð.
Vínaslóðir nyrðri byrjar klukkan 21:00 í kvöld.