Gengið um eystra eldhraunið

Það verður gengið um eystra Edlhraunið í ferðalífsþætti kvöldsins klukkan 21:00 undir leiðsögn hjónanna Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rísu Sigrúnar Jónsdóttur sem hafa marga stígana stikað á undanliðnum áratugum.

Í þættinum blasir við eitthvert fegursta náttúruvætti Íslands, enda þurfti mikið til þess að búaa það til, sjálfa Skaftáreldana sem höfðu ekki einvörðungu eyðileggjandi áhrif á Íslandi seint á átjándu öld heldur og um allt norðurhel jarðar - og jafnvel víðar.

Í myndinni er lýst afleiðingum Skaftárelda á fólk og fénað og lesið úr ævisögu síra Jóns eldklerks Steingrímssonar sem reit merkar heimildir um eldana.

Gengið er að Miklafelli og yfir hraunið og loks niður með Hverfisfljóti.

Kvikmyndagerð og klippingu annaðist Pétur Steingrímsson.