Aftur gengið framhjá höfuðvígi

Páll Magnússon alþingismaður skrifar færslu á Facebook.

\"Í annað sinn á innan við ári hefur formaður Sjálfstæðisflokksins nú gengið framhjá Suðurkjördæminu þegar kemur að ráðherraskipan í ríkisstjórn sem flokkurinn á aðild að.\" 

\"Þetta gerist þrátt fyrir að kjördæmið sé annað höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins á landinu.\"

Páll greiddi þó atkvæði með stjórnaráttmálanum og hann styður fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.

Líkast til verða þessi mál rædd á landsfundi X-D 2018.

[email protected]