Gengi breska pundsins hækkar

Seðlabankastjóri segir að líkast til muni peningastefnunefnd Englandsbanka (BOE) skoða að það hækka stýrivexti.  Gengi sterlingspundsins styrkist nokkuð við þessi ummæli Mark Carney.

Markmið hans er að verða við tilmælum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að endurræsa efnahagslífið á Stóra-Bretlandi. Efnahagssamdráttur er ríkisstjórn Theresa May áhyggjuefni.

Þessi samdráttur undanfarna mánuði er sagður bein afleiðing ákvörðunar Breta um útgöngu úr Evrópusambandinu.  Kosningarnar fyrr í þessum mánuði áttu að festa Brexit í sessi og tryggja framgang stefnu Theresa May en þetta virðist ekki hafa gengið eftir.

rtá

Nánar www.bloomberg.com