Gekk velferðarstefnan ekki upp?

Gekk velferðarstefnan ekki upp?

Aðgerðaáætlun í leik- og grunnskólum kynnt:

Rekstur leikskóla í borginni hefur ekki verið eins erfiður og á kreppuárunum, segir leikskólastjóri til fimmtán ára.  Rúmlega 70 stöðugildi þarf að manna á leikskólunum og fé til matarkaupa og leikskólagagna hefur verið þannig að máltíð hefur ekki mátt kosta nema um 300 krónur á barn og gögning eru sótt í Góða Hirðinn. Árið 2008 fékk voru  hún greiddar 2.900 krónur í kennslugögn með hverju barni en í dag 1.800 krónur.

Fyrir rúmar 30 þúsund krónur á dag þarf að sjá 100 manns fyrir morgunmat, ávaxtastund, hádegisverði og síðdegishressingu.

Mbl.is sagði frá þaí að stjórn­end­ur leik­skóla í Reykja­vík hafi nú 280 krón­ur á dag til að ráðstafa í mat­ar­inn­kaup fyr­ir hvert barn, en á gjald­skrá leik­skól­anna er engu að síður gert ráð fyr­ir að for­eldr­ar séu að borga um 384 krón­ur á dag í mat­ar­kaup fyr­ir börn sín. Þetta var haft eftir Dagný Gísla­dótt­ir, leik­skóla­kenn­ari.

Foreldrar hafa stigið fram og spurt af hverju megi ekki hækka leikskólagjöldin svo börnin fá almennilega að borða og umhverfi alls skólastarfsins verði betra.

Meirihlutinn í borginni hefur hinsvegar verið með þá stefnu að það sé mikilvægt að vera með leikskólagjöldin lág. Til greina hefur þó komið að tekjutengingja  þá afslætti sem hafa verið gefnir forgangshópum.