„Vel tenntur og vígmóður í Gróttu“ stóð í texta sem fylgdi myndum af því er virðist háhyrnings- eða höfrungshræi sem Viðar Víkingsson gekk fram á í fjörunni við Gróttu í dag.
„Það er svolítið undarlegt að í morgun var ég í kistulagningu hjá hálfbróður mínum, Gísla Víkingssyni, sem var aðal hvalasérfræðingur landsins. Sama dag geng ég fram á hval,“ segir Viðar Víkingsson, kvikmyndagerðarmaður.
Viðar segist hafa verið í göngutúr, eins og svo oft áður, þegar hann sjái eitthvað í fjörunni.
„Ég fer að pæla í því, því þetta er eitthvað skrýtið. Maður áttar sig ekki á því frá göngustígnum. En svo ákvað ég að athuga betur hvað þetta væri. Þá kom í ljós að þetta er líklegast einhverskonar hvalur eða höfrungur. Mér flaug fyrst í huga að þetta gæti verið lík því þetta var eitthvað sem skar sig úr,“ segir Viðar.
Hann hafi tekið myndir af hræinu og sett þær inn á Facebook hópinn Vesturbærinn.
„Þar var einhver sem sagði að þetta væri líklegast ungur háhyrningskálfur. Ég ætti að láta lögguna vita sem láti sérfræðinga vita. Ég hringdi í 112 og þá var þegar einhver búinn að láta þá vita þannig að þetta er í réttum farvegi,“ segir Viðar.
Viðar segir hræið virka frekar nýlegt þar sem það hafi verið heillegt og engin ólykt af því.
„Ég fer oft í göngutúra á Gróttu og ég hef séð dauða höfrunga og seli út í sjónum. En ég hef aldrei gengið fram á svona,“ segir Viðar.