Hjón á Brekkunni á Akureyri ráku upp stór augu í gærkvöld þegar geitungur kom fljúgandi á móti þeim inni í þeirra eigin eldhúsi og flaug framan í andlit heimilisföðurins sem varð illa við. Eftir baráttu upp á líf og dauða náði eiginkonan að fanga dýrið í glas. Lifir geitungurinn enn þótt nokkuð sé af honum dregið og sömu sögu er að segja um karlmanninn á heimilinu.
Hringbraut hafði samband við Erling Ólafsson skordýrafræðing hjá Náttúrufræðistofnun og spurði hvort það sætti tíðindum að geitungar væru á sveimi í norðlenskum eldhúsum á túndrutíma í mars. Erling segir sjaldgæft en ekki einsdæmi að geitungar fari á stjá fyrir norðan svo snemma. Skýringin sé væntanlega sú að dýrið, drottning, hefði lagst í dvala í holrými innanhúss, e.t.v. á háalofti eða öðrum kimum hússins. Drottningin hafi þjófstartað, vaknað of snemma.
\"Það hefur verið losaralegur svefn á þessari drottningu og það er ekki gott fyrir geitunga að vakna svona snemma. Að þjófstarta þýðir að geitungarnir lifa ekki af,\" segir Erling og horfir sem dýrafræðingur vitaskuld til hagsmuna geitungsins.
23ja stiga frost var í Mývatnssveit í 100 km fjarlægð frá Akureyri í fyrrinótt. Áttu hjónin sem fundu geitungadrottninguna í gærkvöld því ekki von á gulu og suðandi dýri, dýri sem gæti bitið. Óhugsandi er að sögn Erlings að geitungar sem leggist í dvala utanhúss vakni svo snemma við þær aðstæður sem nú séu. Um ræði svokallaðan holugeitung en talið er að holugeitungar hafi numið fyrst land á Akureyri árið 2010.
Landnemarnir nýttu sér gáma
Fremur stutt er síðan geitungar sáust fyrst á Íslandi eða á áttunda áratug síðustu aldar. Þeir hafa ekki flugþol til að ferðast hingað norður frá meginlandi Evrópu og segir Erling um landnám þeirra að á þeim tíma sem geitungar fóru að sjást hafi hafist mikill gámainnflutningur frá útlöndum til Íslands með skipum. Gámarnir hafi staðið opnir í útlandinu fyrir lestun og þeir flogið inn úti en út úr gámunum hér innanlands. Síðan hefur ánægja með þessa gesti verið mismikil og jafnvel rætt um plágur á mildum sumrum.
Erling segir að trjágeitungar séu um allt land en holugeitungar sjaldgæfari.