Tónlistarstjarnan Geir Ólafsson þarf að flytja til Kólumbíu þar sem hámenntuð eiginkona hans fær ekki vinnu á Íslandi. Það sem verra er að dóttir þeirra þarf að hætta að æfa hjá Val til að flytja út.
Geir ræddi um stöðuna í einkalífinu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sjálfur ætlar að vera áfram með annan fótinn á Íslandi til að sinna blómlegum tónlistarferlinum.
„Konan mín er búin að fá góða stöðu í Kólumbíu hjá VISA. Ég er náttúrulega gríðarlega stoltur af henni. Hún er búin að vera hérna heima á Íslandi og lokaðist hérna inni í veirunni í fyrra,“ sagði Geir.
Eiginkona hans, Adriana Patricia Sanches Krieger, er frá Kólumbíu. „Hún er markaðs- og efnahagsfræðingur og búin að vinna í fjármálaheiminum í ótrúlega mörg ár.“
Hún fékk þó ekki vinnu á Íslandi. „Hún reyndi að sækja um vinnur hérna en það gekk ekki nægilega vel.“
Söngstjarnan hefur engar skýringar á því. „Oft á tíðum hefðu einhverjir átt kannski að sýna henni meiri virðingu. En ég ætla ekki að fara nánar út í það.“
Geir segir að dóttir þeirra þurfi að flytja. Hún talar þrjú tungumál og æfir fótbolta hjá Val. „Dóttir mín fer með henni og verður þarna þennan tíma sem hún er þarna úti.“