Geir hættir sem sendi­herra

Geir H. Haarde mun láta af störfum sem sendiherra Íslands í Washington D.C. þann 1. júlí næstkomandi. Í staðinn tekur hann sæti í stjórn Alþjóðabankans. RÚV greinir frá en þar segir að starfsmönnum utanríkisráðuneytisins hafi verið greint frá í morgun.

Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin skiptast á að eiga fulltrúa í stjórn bankans sem er staðsettur í Washington. Á fundinum í utanríkisráðuneytinu var greint frá fleiri reglubundnum breytingum á sendiherrastöðum, þar á meðal í Osló, Kaupmannahöfn og Berlín að því er RÚV greinir frá.

Geir tók við embætti sendiherra í Washington D.C. árið 2015.

Frettabladid.is greinr frá