Gefur öllum lausan tauminn

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur ákveðið að veita engum umboð til stjórnarmyndunnar, ekki að sinni. Þar með standa allir flokkar jafnir hvað varðar frumkvæði að myndun næstu ríkisstjórnar.

Guðni upplýsti að hann hafi í samræðum við formenn flokkanna lýst þeirri skoðun sinni að ekki sé vænlegt til árangurs ef flokknarnir útiloki hvern annan án þess að reyna að nálgast hvor annan. Formennirnir tóku allir undir orð forseta, að því er hann segir.

Guðni sagði að sú stund nálgist að Alþingi komi saman. Hann var spurður hvort hann teldi það að enginn hefði umboð til stjórnarmyndar góðan leik í stöðu sem nú er uppi. Hann sagðist bjartsýnn á að það sé vænlegt til árangurs.

-sme