Andri Snær Magnason rithöfundur gefur lítið fyrir nýútgefna skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða á Íslandi. Niðurstöður skýrslunnar eru þær að hvalveiðar séu hagkvæmar. Í stöðuuppfærslu á Facebook kallar Andri Snær skýrsluna „heillandi fantasíu.“ Fréttablaðið.is greinir frá.
Hann segir margt kostulegt í skýrslunni, þar á meðal fullyrðingu um að ef langreyðarstofninn minnkar um 40 prósent megi gera ráð fyrir því að útflutningsverðmæti Íslendinga af fiski vaxi um 2,4 milljarða króna á ári.
„Það er smá ókostur í fantasíunni að höfundur gleymir að lýsa blóðbaðinu við slátrun á 16.000 langreyðum og hvað skuli gera við nærri milljón tonn af dauðum hval. Stíllega hefði það reyndar eyðilagt verkið, vegna þess að hreinleiki einkennir Excelskjöl. Milljón tonn af dauðum hval er óþrifnaður og óreiða, næstum eins og einhverskonar náttúra.“ skrifar Andri og segir skýrsluna veita skemmtinlega innsýn í huga hagfræðings sem ímyndi sér að hann búi á jörð sem hagi sér eins og Excel skjal.
Andri furðar sig einnig á því af hverju sé talað um „Íslendinga“ í skýrslunni. „Af hverju er maðurinn sem þetta snýst allt um ekki bara ávarpaður með nafni?“ spyr Andri sem nefnir manninn þó ekki sjálfur á nafn. Ekki er ólíklegt að þarna eigi Andri við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf.