Tommi á Búllunni, sem situr nú á Alþingi fyrir Flokk fólksins, virðist lítt uppnuminn af áætlunum um lögleiðingu neysluskammta fíklniefna. Í pistli á fréttasíðu Eiríks Jónssonar segir hann að vísu að honum sé sama hvort frumvarp þess efnis nái fram að ganga því neysla muni ekkert breytast við gildistöku slíkra laga. Bendir hann á að hann sé sjálfur óvirkur alkóhólisti í bata, sé í reglulegum samskiptum við virka og óvirka fíkla og tali því um málefnið af eigin reynslu.
„Lets feis it,“ skrifar Tommi. „Það er bara verið að skemmta skrattanum með að fara að semja svona lög. Og þeir sem eru að fást við málið hafa ekkert vit og enga þekkingu a þessum málaflokki.“
Tommi segir baráttuna gegn fíkniefnum fyrir löngu tapaða og að hyggilegast væri að reyna að ná utan um neyslu með forvörnum og góðri aðhlynningu. „Sannleikurinn er sá að það væri miklu skynsamara að lögleiða og ná utan um viðskiptahliðina því löggan og tollurinn munu aldrei ráða við þetta. Bófarnir eru alltaf skrefi á undan.“