Gefur ekki kost á sér

Birgitta Jónsdóttir alþingismaður Pírata hefur ákveðið að hætta þingmennsku. Í færslu á Facebook-síðu sinni skrifar Birgitta að ekkert fái hana til að skipta um skoðun.

Birgitta settist fyrst á þing fyrir Borgarahreyfinguna árið 2009. Hún er núna formaður þingflokks Pírata.

Hinn 24. nóvember 2012 var formlega stofnaður Pírataflokkur á Íslandi undir nafninu Píratar. Í kosningunum árið 2016 fékk flokkurinn tíu þingmenn.

Flokkurinn telst vera frjálslyndur miðjuflokkur.

[email protected]