Gefast ekki upp við loðnuleit

Tvö skip munu reyna að finna loðnu eftir að sjómenn sáu álitlegar torfur sunnarlega við landið um liðna helgi. Þorsteinn Sigurðsson sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun segist gera hóflegar væntingar. RÚV.is greinir frá.

Þorsteinn segir að vera kann að um sé að ræða sömu loðnu og fannst áður á Austurlandi, en ekki er útilokað að eitthvað hafi bæst við. Ákveðið var að fresta leit fyrir vestan og senda leitarskipin að mögulegri göngu úr tveimur áttum. Grænlenska skipið Polar Amaroq, sem er í eigu dótturfélags Síldarvinnslunnar á Neskaupstað, sigldi frá Reykjavík í gær og í stað þess að fara vestur kembdi það svæði suður af Reykjanesi.

Þorsteinn segir að þar hafi ekkert sést af þeim fallegu torfum sem sjómenn sáu á svæðinu frá Vestmannaeyjum og austur undir Skeiðarárdjúpi. Þær voru á hraðri leið vestur og ekki ólíklegt að þær verði brátt á vegi Polar Amaroq. Skipið kom við í Þorlákshöfn í morgun og náði í rannsóknarfólk frá Hafró og tók stefnuna austur á móti mögulegri loðnugöngu.

Milli fjögur og fimm í dag mun skipið Ásgrímur Halldórsson frá Skinney Þinganesi taka þátt í leitinni og fara frá Hornafirði til að leita að torfum úr hinni áttinni.