Gefa ríkisstjórninni 5 daga frest

Forkólfar Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins segja að ríkisstjórnin verði að koma fram með sínar tillögur til að liðka fyrir komandi kjarasamningum í þessari viku. Frekari samningaviðræður ráðist á því hvað ríkið ætli að gera.


Lengi hefur legið í pípunum að breyta skattkerfinu í þágu lægst launaða fólksins í landinu, en nú er því jafnframt haldið á lofti að hækka beri persónuafsláttinn upp í 65 þúsund krónur. Forsvarsmenn Alþýðusambandsins funduðu fyrir helgi með forsætisráðherra og fjármálaráðherra þar sem þessar leiðir voru viðraðar, en þeir fyrrnefndu segja að hvorki muni reka né ganga í samningaviðræðum á næstu dögum fyrr en stjórnvöld hafa sýnt á sín spil. Talað er einkum um að fækka skattþrepum um eitt, taka út milliskattþrepin svo eftir standi tvö. 


Þrýstingurinn á stjórnvöld fer vaxandi með hverjum deginum, ekki einasta sakir mjög viðkvæmra og umdeildra verkfallsaðgerða á heilbrigðisstofnunum sem eru jafnvel farnar að stefna lífi fólks í hættu, heldur vofa nú yfir verkföll tugþúsunda launþega VR, Flóabandalagsins og Landssambands íslenskra verslunarmanna sem greiða um það atkvæði á morgun hvort boða eigi verkfall. Þá styttist og í ótímabundið verkfall Starfsgreinasambandsins þar sem tíu þúsund félagsmenn hringinn í kringum landið munu leggja niður vinnu ef ekki semst á næstu dögum.