Geðveikin hefur styrkt skrifin mín

Geðveiki og drykkjuskapur - og svo auðvitað virkjun mannshugans er helsta umræðuefni þeirra Einars Más Guðmundssonar og Sigmundar Ernis Rúnarssonar í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld.

Einar Már er að senda frá sér sína 27. bók um þetta leyti, Passamyndir sem kallast mjög á við þekktasta verk hans, Engla alheimsins og ættarbækurnar þrjár sem komu út seint á tíunda áratugnum og upp úr aldamótum. Andi Pálma bróður hans svífur þar af leiðandi ennþá yfir vötnum, en hann barðist um árabil við illvígan geðsjúkdóm sem að lokum reyndist honum ofviða. Einar Már ræðir það í viðtalinu hvað geðsýkin getur veikt bæði og styrkt fjöldkyldulífið - og hvað hann sjálfan varðar telur hann að sú lífsreynsla að alast upp við hliðina á hugsjúkum bróður hafi styrkt hann sem rithöfund og kallað fram hans helstu höfundareinkenni; návígið við geðveikina hafi þannig styrkt hann í skrifunum.

Hann kveðst stundum hafa velt því fyrir sér hvort hann sjálfur væri ekki svolítið klikkaður - og það sé hann sjálfsagt á sína vegu, en einnig afar eðlilegur, að ekki sé talað um þakklátur fyrir að hafa getað virkjað ímyndunaraflið sér til lífsviðurværis um ævi sína og daga. Og hann talar um drykkjuskapinn sem leiddi til þess að hann gafst upp á óreglunni fyrir þrettán árum - og fann þá aftur róttæka samfélagsrýninn sem hann var í upphafi ferilsins sem þrammaði um torg og stræti og spangólaði hendingar úr fyrstu bókunum sínum sem enginn útgefandi hafði áhuga á að gefa út.

Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.