Geðveikin er svo góður sölumaður. Hún getur sannfært mann um hvaðeina á svipstundu og maður bara gerir það sem hún segir manni. Þessi eftirminnilegu orð féllu í þættinum Mannamáli í gærkvöld þar sem listakonan Elísabet Kristín Jökulsdóttir sagði lífssögu sína.
Ella Stína, eins og hún er gjarnan kölluð á að baki margbrotna ævi eins og vel kom fram í þættinum. Þar gaf hún ekkert undan í lýsingum sínum á sambandi sínu við föður sinn, Jökul Jakobsson leikskáld sem hún segir að hafi oft og tíðum komið fram við sig eins og dauðan hlut, en fyrir vikið hafi hún verið með svo brotna sjálfsmynd þegar hann féll frá árið sem hún varð tvítug að hugur hennar hafi bugast. Við tóku ár erfiðrar geðhvarfasýki og algerrar sannfæringar um að Elísabet Kristín Jökulsdóttir færi um höfuðborgina á guðs vegum og ætti að boða öllum hinn heilaga sannleika í eitt skipti fyrir öll. Að lokum hafi hún verið svo ömurlega á sig komin, illa þrifin á hungurmörkunum, að mamma hennar hefði kallað til lögreglu þegar hún fékkst einu sinni til að fara í sturtu heima hjá henni og þaðan var hún send á Klepp. Móðir hennar afréð á þessum tíma að svipta hana sjálfræði sem Ella Stína segir að eftir á hafi verið það eina rétta sem mamma hennar gat gert, en það hafi vissulega verið sárt fyrst á eftir og þær mæðgur hafi ekki talast við í langan tíma eftir Kleppsvistina. Ekki hafi heldur bætt úr skák að frumburður hennar, strákur sem hún eignaðist 18 ára, hafi verið tekinn af henni á þessum tíma og komið til föðurfjölskyldunnar þar sem hann ólst upp.
Ella Stína lýsir af algeru hispursleysi og óvenjulegri bersögli árunum sem tóku við; þegar hún bjó í undirheiminum með fíkniefnasölum og glæpamönnum með tvíburana sína sem hún hafði eignast með barnsföður sínum sem hafi leikið hana illa í þeirri alls herjar órreglu sem einkenndi líf þeirra á þessum tíma.
Þáttinn má sjá í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is en umsjónarmaður þáttarins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, hefur sagt viðtalið vera sitt persónulegasta sem hann hafi tekið á ríflega 30 ára fjölmiðlaferli sínum.
Smella hér til að horfa á þáttinn.