Geðþótti og stjórnlyndi pólitíkusa eru ekki lestir. Þannig skrifa bandarískir stjórnmálaskýrendur til að áminna um alvöruleysi stjórnmála. Nánar www.bloomberg.com www.politico.eu www.ft.com www.voanews.com
Raunar er fráleitt að dæma bandarísk stjórnmál út frá geðþótta og stjórnlyndi þess manns sem tímabundið býr í Hvíta húsinu. Þó alger Pandóruaskja stjórnlynds manns á borð við Donald John Trump sé opnuð þá er það ekki eins skaðleg og halda mætti.
Árið 2018 stefnir flokkur forsetans - Repúblíkanaflokkurinn - í ófarir (ef ekki í afhroð) í kosningum í nóvember. Sannfæringarkraftur og hæfileiki Donald John Trump forseta Bandaríkjanna getur snúið þessu til betri vegar fyrir Repúblíkana. Jesús frá Nasaret var klisjukarl. En þó náði hann að komast að kjarna hvers máls á sinn þvælna hátt: \"Hvert það ríki sem er sjálfu sér sundurþykkt leggst í auðn og hús fellur á hús.\"
Þetta vita bandarískir Repúblíkanar. Og þeir vita að Donald John Trump veit þetta. Trump er til í að styðja Repúblíkana í komandi kosningum. Annað hvort af eljusemi. Eða þá með hangandi hendi. Valið er Repúblíkana.
Fárið í gær á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna var leikhúfarsi. Innanríkispólitík Bandaríkjanna íklædd felulitabúningi mikilvægs utanríkismáls. Ys og þys úaf engu. Köttur slegin úr tunnu. Ísland lét þennan leikhúsfarsa ekki villa sér sýn og púaði og stappaði niður fótum. Slíkt var óhætt. Tilburðir bandaríska framkvæmavaldsins tryggja sviðsljós. Annað þurfti ekki. Donald John Trump opnaði Pandóru öskju. Hún reyndist tóm. Galtóm. Bandaríkin eru sem fyrr kærulaus um orðspor.