Öryrkjum hefur fjölgað um 29% frá nóvember 2005 til nóvember 2015. Frá nóvember 2010 til nóvember 2015 fjölgaði þeim um 9%.
Kemur þetta fram í á heimasíðu velferðarráðuneytisins.
Hlutfall karla og kvenna hefur haldist nokkuð jafnt frá árinu 2005. Konur eru 60% öryrkja en karlar 40%.
Geðraskanir og stoðkerfissjúkdómar eru meginorsakir örorku. Geðraskanir eru algengasta ástæða örorku hjá körlum og einkum hjá ungum körlum.
Hlutfall öryrkja af fólksfjölda hefur lítið aukist frá desember 2004 til desember 2014. Öryrkjar á aldrinum 18-66 ára voru að meðaltali 7% af fólksfjölda á sama aldursbili í desember árið 2004 og í desember 2014 var hlutfallið 8,2%.
Eygló Harðardóttir er ráðherra yfir málaflokki öryrkja. Í Reykjavík síðdegis í gær á Bylgjunni sagði Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins, ranga forgangsröðun ríkisstjórnarinnar stóra ástæðu þess að öryrkjum hefur fjölgað umtalsvert hér síðari ár.
„Það sem við erum að sjá núna hjá þessari ríkisstjórn er að hún forgangsraðar þannig að ríkir verða ríkari og fátækir verða fátækari. Það hefur ekki tekist að styrkja innviði heilbrigðiskerfis, menntakerfis og félagslega kerfis eins og þarf,“ sagði Ellen í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.