Geðhjálp lýsir yfir áhyggjum vegna sumarlokana geðsviðs

Stjórn Geðhjálpar segist hafa þungar áhyggjur vegna fyrirhugaðar lokunar 15 rúma af 31 rúmi á deild 33A á geðsviði Landspítalans í sumar. Stjórnin segir að notendum og aðstandendum þeirra svíður sárt að sumarlokanir séu orðnar fastur liður í starfsemi geðsviðsins. Stjórn Geðhjálpar segist skora á stjórnvöld að tryggja Landsspítalanum nægilegt fjármagn til þess að hægt verði að halda uppi þjónustu á geðsviðinu allt árið í kring.

„Stjórnendur geðsviðsins eru hvattir til að mæta starfmannaeklu með því að bæta launakjör starfsmanna og mæta fjölbreyttum þörfum notenda með því að sækjast eftir kröftum starfsmanna með fjölbreytta menntun og reynslu. Skorað er á stjórnvöld að tryggja spítalanum og þar með geðsviðinu nægilegt fjármagn til að halda uppi aðgengilegri, faglegri þjónustu allan ársins hring. Geðhjálp minnir á að geðræn veikindi bera að garði á sumrin eins og á öðrum tímum ársins. Samtökin hafa áhyggjur af því að sumarlokanirnar geti hækkað þröskuld inn í þjónustuna og aukið líkur á ótímabærum útskriftum sjúklinga. Brýnt er að aðgengi að þjónustu geðsviðsins sé tryggt enda er ekki hægt að ganga að sambærilegri þriðja stigs þjónustu annars staðar. Með sama hætti er athygli vakin á því að sumarlokanirnar komi harðar niður á notendum geðheilbrigðisþjónstunnar en ella því að á sama tíma dragi úr starfsemi göngudeildar sviðsins og ýmis fámennari úrræði innan félagageirans neyðist til að loka vegna sumarleyfa.“

Sjá einnig: 15 rúmum af 31 lokað á bráðageðdeild – „Fólk veikist ekkert síður á sumrin“

Þá ítrekar stjórn Geðhjálpar að yfirvöld leiti allra leiða til að tryggja nægilega mönnum á geðsviði Landsspítalans svo landsmenn geti haft aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu sem þau eigi rétt á samkvæmt lögum. 

„Geðhjálp leggur áherslu á að starfsmönnum geðsviðs séu tryggð ásættanleg launakjör í því skyni að draga úr starfsmannaveltu. Þá eru stjórnendur sviðsins hvattir til að skoða kosti þess að mæta ólíkum þörfum sjúklinga með starfsmönnum með fjölbreytta menntun og reynslu. Þar má nefna sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraliða og þroskaþjálfa. Síðast en ekki síst bendir Geðhjálp á ótvírætt gildi þess að ráða fólk með reynslu af geðrænum veikindum til starfa inn á deildir sviðsins. Slíkar ráðningar hafi gefi góða raun í nágrannalöndum okkar eins og Bretlandi. Geðhjálp ítrekar að leitað verði allra leiða til að tryggja nægilega góða mönnun á geðsviði LSH til að stuðla að eðlilegu aðgengi að þjónustunni, faglegum vinnubrögðum og hóflegu álagi á starfsmenn. Ábyrgð stjórnvalda á að tryggja spítalanum nægilegt fjármagn til þess að veita landsmönnum fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu er áréttuð.“