Geðheilbrigðismál ofarlega í hugum ungra kjósenda

Alls 24 framhaldsskólar af 30 munu taka þátt í svonefndum skuggakosningunum á morgun, 13. október. Ungt fólk skilar sér síður á kjörstað og eru kosningarnar gjörningur til að vekja athygli á því en ekki síður til að fá ungt fólk til að kynna sér flokka, menn og málefni.

Einnig er staðreynd að flokkarnir höfða mjög mismunandi til ólíkra aldurshópa og vakti nýverið athygli að aðeins 1 prósent yngra fólks með kosningarétt, fram að 29 ára segjast styðja Samfylkinguna.  Þá eiga Píratar mest fylgi meðal yngri kjósenda sem vafi er á að skili sér allt miðað við kjörsókn þessa hóps.

Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir og Tinna Isebarn mæta á Þjóðbraut í kvöld en komið hefur fram í máli ungs fólks að geðheilbrigðismál eru þeim mjög hugleikin.

Fundað er með frambjóðendum auk kosninganna.