Gbs: þingmenn hallir undir útgerð

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra lét að því liggja í morgunþætti Rásar 2 í morgun að margir þingmenn væru hallir undir sjávarútveginn og uppteknir af hagsmunum hans sakir greiðasemi útgerðarfélaga við frambjóðendur til þings. Hann nefndi þar þó engin nöfn.

Mjög hefur verið þrýst á Gunnar Braga um að snúa af braut þvingunaraðgerða gagnvart Rússum, en þar er utanríkisráðherra á sama báti og Evrópusambandið og Bandaríkin og raunar fleiri lönd sem vilja ekki líða yfirgang Kremlarvaldsins í Úkraínu.

Útgerðarmenn vilja frekar selja Rússum fisk en taka þátt í þessari samstöðu þjóðanna. En Gunnar gefur sig hvergi - og hefur raunar vakið mikla athygli út fyrir raðir stjórnarflokkanna fyrir einarða afstöðu sína sem oft og tíðum virðist hafa farið í taugarnar á formönnum stjórnarflokkanna sem hafa verið gagnrýndir fyrir að halla sér frekar að útgerðinni en frændþjóðumhbvirðast hallari undir útgerðarhagsmuni en . 

„Menn geta gert hvað sem þeir vilja varðandi mig, ég mun ekki skipta um skoðun í þessu máli því það er rangt að hverfa frá þessum þvingunum fyrir þessa milljarða sem þarna eru,“ segir Gunnar Bragi og vísar til þess taps sem útgerðin er sögð hafa orðið fyrir vegna þvingana sem Rússar hafa beitt Ísland á móti frá því í ágúst. Tapið sé hinsvegar mun minna en talið var í upphafi þegar talað hafi verið um að tapið yrði um 37 milljarðar. „[Þetta tap skiptir] okkur máli, við skulum ekki gera lítið úr því, en það eru aðrir hagsmunir sem skipta okkur miklu meira máli. [...] Fyrir sjávarútveginn skiptir fátt meira máli en alþjóðasamningar og alþjóðalög, þegar kemur að því að verja landhelgina, rökstyðja af hverju við megum veiða makríl þegar hann syndir inn í okkar lögsögu og svo framvegis. Þannig að ég hvet þessa dugmiklu og góðu aðila í sjávarútveginum til að slaka á og virkilega taka hagsmuni Íslands umfram eigin hagsmuni,“ sagði ráðherrann næsta vígreifur í morgunþætti Rásar 2 í morgun.