Sveinn Steinarsson, forseti bæjarstjórnar sveitarfélagsins Ölfus, í Þorlákshöfn segir í kvöld á Hringbraut að lög um stjórn fiskveiða gangi alls ekki nógu langt til að vernda byggðir fyrir því að kvóti sé seldur úr sveitarfélaginu. Forkaupsréttur sveitarfélaga sé ekki nógu sterkur í lögunum en viðurkennir þó að sveitarfélagið sjálf hefði ekki haft neina burði til að kaupa kvótann sem seldur var nýverið burt og halda honum í byggðinni. Sveitarfélagið hefði ekki getið beitt sér fjárhagslega.
Sveinn lagði áherslu á að bæjarstjórnin hefði viljað vita meira um hvað stóð til þegar útgerðarfyrirtækið Hafnarnes VER í Þorlákshöfn seldi til HB Granda á dögunum 1600 þorskígildistonn eða um þriðjung aflaheimilda í bænum, fyrir tæpa fjóra milljarða króna. Áður hafði fyrirtækið Auðbjörg verið selt og allur kvótinn með því.
Sveinn segir að það hefði í raun ekki breytt niðurstöðunni en hefði verið betra ef sveitarstjórnin hefði verið með í öllu ferlinu. Slæmt hefði verið að frétta af sölunni í gegnum fjölmiðla. Hann skilji þó stöðu Hafnarness sem var mjög skuldsett eftir að hafa keypt kvótann árið 2006.
Bæjarstjórn Ölfuss sendi frá sér yfirlýsingu fyrir nokkrum dögum þar sem fyrirtækið var gagnrýnt fyrir söluna og þar sagði meðal annars: „“Því fylgir mikil ábyrgð að vera handhafi veiðiheimilda og það er mikilvægt samfélagsmál að eigendur þessara fyrirtækja horfti til hagsmuna þeirra sveitarfélaga sem þeir starfa í og leiti allra leiða til að ráðstafa veiðiheimildum innan síns byggðalags“.
Hringbraut fjallar um kvótamissinn í Þorlákshöfn í kvöld í sérstökum þætti um kvótakerfið.