Gáttuð á þeim sem vilja hefta frelsi manna og jafnvel loka landinu

„Af fréttum að dæma liggja fleiri inni vegna rafskútuslysa en Covid. Hví leyfa menn sér að slengja fram hugmyndum um að hefta frelsi manna (jafnvel loka landinu) eins og það sé bara formsatriði og án alls kostnaðar?“ spyr Sigríður Á Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Twitter í kjölfar ummæla Runólfs Pálssonar yfirmanns COVID göngudeildar Landspítalans í kvöldfréttum.

Öldruð kona, smituð af COVID-19 var lögð inn á Landspítalann í gær og í frétt um málið sagði Runólfur í samtali við „Það má alveg búast við því að fólk þurfi að leggjast inn á spítala en það getur líka verið út af einhverju öðru en Covid-19 því þeir sem eru smitaðir núna þeir eru langflestir með mjög væg einkenni eða engin,“ sagði Runólfur, í samtali við visir.is og bætti því við að hann teldi ráðlegt að grípa til aðgerða. Til dæmis væri skynsamlegt að krefjast neikvæðrar niðurstöðu úr PCR-prófi við komu til landsins.

Þessa lógík er þingkonan ekki sátt við, en hún hefur verið talsmaður þess að menn ígrundi vandlega þær ráðstafanir sem ráðast á í, ekki síst út frá réttindum og frelsi íbúa landsins. Það eigi ekki að ‚gera bara eitthvað‘.

„Ég tek það fram að mér hefur þótt Runólfur hallast að skynseminni frá upphafi þessa faraldurs. Þessi ummæli núna hljóma furðulegri fyrir vikið. #ekkigerabaraeitthvað“ segir Sigríður á Twitter.